Barátta
    <description>Barátta</description>
Leiðrétting
      <description>Þeir sem fóru á Austurvöll að mótmæla iðnaðarstefnu stjórnvalda þann 14. maí hafa vafalaust orðið fyrir vonbrygðum. Þannig vill til að NFS byrti fyrir slysni ranga dagsetningu, rétt dagsetning á þessum mótmælum er 24. maí.
Að sjálfsögðu munum við mæta þann dag enda viðbúið að þau mótmæli verði í kröftugra lagi. Þarna mun okkur einnig gefast tækifæri til þess að kynna mótmælin 27. maí en þau eru haldin af sama tilefni. 
Við munum byrta frekari tímasetningar um leið og við heyrum af þeim. Sjáumst sem allra flest.</description>
Við höfum safnað fyrir rafstöð!!
      <description>Okkur hafa borist nægilega mörg framlög til þess að leigja rafstöð í einn dag!!!
Við þökkum þeim sem sýndu framlagi okkar stuðning í verki og hlökkum innilega til bæði sunnudagsins og mánudagsins.</description>
Mótrmæli gegn iðnaðastefnu stjórnvalda 14. maí
      <description>Þau ánægjulegu tíðindi bárust með hádegisfréttum NFS í dag að bókin Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason hafi haft slík áhrif á tvo sjúkrahússtarfsmenn að þau hafi ákveðið að skipuleggja mótmæli á Austurvelli þann 14. maí næstkomandi (á sunnudaginn).
Það lýtur sem sagt út fyrir að maí verði góður mánuður fyrir andófið gegn stóriðjustefnu stjórnvalda því að daginn eftir verða mótmæli Baráttu við Nordica Hotel og allt virðist stefna í fleiri mótmæli í þessum mánuði. 
Í dag verður lagður hornsteinn að Kárahnjúkavirkjun og því er efnt til mótmælastöðu klukkan 3 við Alþingishúsið og... (more)</description>
Bókhald vegna frjálsra framlaga
      <description>Okkur hefur borist 1500 króna framlag til þess að við getum leigt rafal fyrir mótmælin þann 15. maí. Þetta þýðir að við eigum 6500 krónur í land. Við viljum koma á framfæri þakklæti fyrir þessa gjöf. 
Rétt í þessu fengum við póst um 2000 króna framlag í viðbót :) !! Takk fyrir kærlega!!!
Við höfum fengið 1000 krónur í viðbót inn á reikninginn. 
Við þökkum kærlega fyrir og tilkynnum með stolti að okkur hefur áskotnast nægt fé til að leigja rafstöð í einn dag.
Fjárstuðningur væri vel þeginn
      <description>Við hjá Baráttu sjáum fram á að þurfa að leigja mótor til þess að knýja hljóðkerfi á mótmælum okkar við Iðnaðarstefnunni þann 15. maí við Nordica Hotel. Það mun kosta okkur 8 þúsund krónur.
Þar sem við erum, eins og svo margir aðrir, hálfgerðir öreigar væri hver króna sem fólk gæti séð af þessu til stuðnings mikils metin. Þeim sem vilja styðja framtakið er bent á að þeir geta lagt frjáls framlög inn á þennan bakareikning: 
reikningsnr: 8936
höfuðbók: 26
banki: 303
kennitala: 220786 2189
Framlög verða talin fram á þessari síðu og verði nokkur afgangur af söfnuninni verður honum... (more)</description>
Saving Iceland
      <description>Við viljum benda fólki á heimasíðuna www.savingiceland.org þar sem nálgast má margsskonar skrif um náttúruspjöll, iðnfyrirtæki og baráttuna fyrir verndun Íslands. Þar má einnig sjá fréttir af mótmælaaðgerðum hér heima og erlendis til verndunar íslenskri náttúru.</description>
Náttúruvaktin stendur sorgarstöðu 12 maí.
      <description>Fyrirséð er að forseti Íslands muni leggja hornstein að Kárahnjúkavirkjun þann 12. maí. Meðlimum náttúruvaktarinnar, eins og öðrum umhverfisverndarsinnum, fallast hendur. Hvað er eiginlega að þegar forseti lýðveldisins slefar utan í svo landeyðandi og ólýðræðislega framkvæmd sem Kárahnjúkavirkjun er? 
Efnt verður til sorgarstöðu við Alþingishúsið og Stjórnarráðið þann 12. maí vegna þessa. Fólk er hvatt til að mæta svartklætt og sýna samstöðu með landsvæðinu sem valdastofnanir Íslenska ríkisins hafa nú sameinast um að myrða til þess að hugnast erlendum stórfyrirtækjum. </description>
Vill nokkur aðstoða?
 Okkur vantar aðstoð við skipulagningu og framkvæmd mótmælanna við Nordica Hotel þann 15. Maí. VIð lýsum eftir hverjum þeim sem getur orðið að liði. Hér eru nokkur atriði sem okkur vantar hjálp við. Hafið samband ef þið viljið: baratta@visir.is     Uppákomur: Við viljum helst hafa sem fjölbreyttasta dagskrá og þess vegna lýsum við eftir einstaklingum eða hópum sem vilja og sjá sér þess fært að troða upp með tónlist, dansi, ræðuhöldum, ljóðaflutningi, gjörningum eða öðrum hætti. Hafa ber í huga að það er ekki víst að við náum að setja upp hljóðkerfi og því er best ef fólk verður þess viðbúið... (more)</description>
Partí umhverfisverndarsinna 15. maí
      <description>Alþjóð er boðið í Partí þann 15. Maí við Nordica Hotel til þess að mótmæla þeirri stefnu sem ríkisstjórnin og frammámenn viðskiptalífsins hafa markað í iðnaðar og viðskiptamálum.
Hafið þið velt fyrir ykkur hvers vegna svo fáir mæta í íslensk mótmæli? Við höfum svarið við því. Það er vegna þess að þau eru svo leiðinleg og molluleg að þau eru betur fallin til þess að drepa niður baráttuandann fremur en hitt.
Einhverra hluta vegna virðist hafa skapast hefð fyrir því að íslenskir mótmælendur standi stirðir og þegi þunnu hljóði hvar sem þeir koma saman, og í okkar huga vekur það spurningar eins... (more)</description>