|
Þau ánægjulegu tíðindi bárust með hádegisfréttum NFS í dag að bókin Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason hafi haft slík áhrif á tvo sjúkrahússtarfsmenn að þau hafi ákveðið að skipuleggja mótmæli á Austurvelli þann 14. maí næstkomandi (á sunnudaginn). Það lýtur sem sagt út fyrir að maí verði góður mánuður fyrir andófið gegn stóriðjustefnu stjórnvalda því að daginn eftir verða mótmæli Baráttu við Nordica Hotel og allt virðist stefna í fleiri mótmæli í þessum mánuði. Í dag verður lagður hornsteinn að Kárahnjúkavirkjun og því er efnt til mótmælastöðu klukkan 3 við Alþingishúsið og Stjórnarráðið.
|
| Snæbjörn Brynjarsson May 14, 2006 07:47 AM PDT Frábært hjá ykkur. Þið ættuð að tékka á okkur á Andófi. Við ættum að vera í samstarfi. www.andof.blogspot.com Sjá einnig undirskriftalista okkar: http://www.petitiononline.com/andof/petition.html | ||
| Leave a Comment: |