Entry: Náttúruvaktin stendur sorgarstöðu 12 maí. May 9, 2006



Fyrirséð er að forseti Íslands muni leggja hornstein að Kárahnjúkavirkjun þann 12. maí. Meðlimum náttúruvaktarinnar, eins og öðrum umhverfisverndarsinnum, fallast hendur. Hvað er eiginlega að þegar forseti lýðveldisins slefar utan í svo landeyðandi og ólýðræðislega framkvæmd sem Kárahnjúkavirkjun er? 

Efnt verður til sorgarstöðu við Alþingishúsið og Stjórnarráðið þann 12. maí vegna þessa. Fólk er hvatt til að mæta svartklætt og sýna samstöðu með landsvæðinu sem valdastofnanir Íslenska ríkisins hafa nú sameinast um að myrða til þess að hugnast erlendum stórfyrirtækjum. 

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments