Barátta er tilkynningasvæði fyrir mótmæli og uppákomur sem varða samfélagið. Hér verða slíkar uppákomur auglýstar auk þess sem bent verður á æskilegar aðgerðir á þeim. Róttæk barátta á Íslandi er stöðnuð, m.a. vegna þess að einstaklingarnir treysta á samtök til að hrinda öllu í framkvæmd í stað þess að treysta á sjálfa sig. Við hvetjum alla til að sýna lit og frumkvæði í baráttu gegn óréttlæti og valdníðslu, og viljum gefa fólki góð ráð. Sameinaðir stöndum vér.

<< May 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05 06
07 08 09 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



May 9, 2006
Náttúruvaktin stendur sorgarstöðu 12 maí.

Fyrirséð er að forseti Íslands muni leggja hornstein að Kárahnjúkavirkjun þann 12. maí. Meðlimum náttúruvaktarinnar, eins og öðrum umhverfisverndarsinnum, fallast hendur. Hvað er eiginlega að þegar forseti lýðveldisins slefar utan í svo landeyðandi og ólýðræðislega framkvæmd sem Kárahnjúkavirkjun er? 

Efnt verður til sorgarstöðu við Alþingishúsið og Stjórnarráðið þann 12. maí vegna þessa. Fólk er hvatt til að mæta svartklætt og sýna samstöðu með landsvæðinu sem valdastofnanir Íslenska ríkisins hafa nú sameinast um að myrða til þess að hugnast erlendum stórfyrirtækjum. 


Posted at 03:04 am by Baratta

 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry